Fjölskylduíbúð á Adeje, Tenerife

Komdu og njóttu hlýjunnar og sólarinnar með fólkinu þínu í frábærri fjölskylduíbúð með öllu til alls…

Komdu og njóttu…

Njóttu sólarinnar með fjölskyldunni og fleiri til í þessari 160 fm íbúð sem býður upp á gistingu fyrir 8-10 manns. Íbúðin er með hjónasvítu, tveimur svefnherbergjum og góðum svefnsófa í stofunni. Vel búið eldhús er tilvalið til að útbúa morgunverð sem notið er í sólinni eða græja kvöldmat þegar ekki er farið út að borða - og Weber grill á öðru af einkaútisvæðunum sem fylgja íbúðinni.

Og þegar þið viljið bara hafa það notalegt á kvöldin - eða hafa fyrir börnunum á meðan fullorðna fólkið hefur það kósý fyrir utan, þá hafið þið allt til alls fyrir krakkabíó í stofunni. Stutt frá flugvellinum, ströndinni og X Sur verslunarkjarnanum, og fjölmargar verslanir og veitingastaðir í kring.

Allt til alls…

  • Þrjú svefnherbergi

  • Tvö baðherbergi

  • Svalir úr tveimur herbergjum

  • Vel búið eldhús

  • Tvö einka útisvæði

  • Weber gasgrill + gashella

  • Tvær upphitaðar sundlaugar

  • Nóg af sólbekkjum

  • Allt fyrir ströndina

  • 12 mín ganga á Fanabe ströndina

  • 15 mín í bíl frá flugvellinum

  • 700m frá X Sur verslunarkjarnanum

  • 15 mín ganga í Aqualand

  • Fjöldi verslana og veitingastaða í kring

  • Sjónvarp í hjónaherbergi og stofu

  • Nettenging

  • Apple TV

  • Netflix

  • Sjónvarp Símans

  • Loftkæling - í einu svefnherbergi og stofu

  • Viftur og ferðaloftkæling í öðrum herbergjum

  • Fullbúið þvottahús

  • 12 kg þvottavél og þurrkari

  • 2 ungbarnarúm

  • 2 barnastólar

  • 1 barnasessa í bílinn

  • Líkamsræktartæki

  • Frábær aðstaða fyrir hjólafólk

  • 2 rafmagnshjól - annað með barnastól