Dísa Óskars var í íbúðinni í janúar 2021 og líkaði vel. Hér sýnir hún okkur húsið.

“Var frábært frí í frábæru húsi, allt til alls og gestgjafinn frábær.”

— Ingólfur Helgason

“Við fjölskyldan (2 fullorðin, 2 unglingar og 3 börn) eyddum 2 1/2 viku í þessari æðislegu íbúð sem við vorum svo heppin að detta inná. Þarna er bókstaflega allt til alls og við fórum því út með mjög lítinn farangur. Við skruppum í hjólaferðir á rafmagnshjólunum, röltum á ströndina, eyddum miklum tíma í lauginni, píla og spil á veröndinni, grillað og notið lífsins. Íbúðin er stór og því nægt pláss fyrir alla sem er algjört must. Hverfið rólegt og matvörubúðin rétt hjá sem krakkarnir gátu skotist í að sækja ís þegar hann kláraðist 😉 Algjör lúxus, mæli 100% með 🌞”

— Fríða Dröfn Ammendrup

“Vildi bara upplýsa ykkur að þetta er yndisleg íbúð sem þið eigið hér á Tene og á frábærum stað. Hér hafa allir það gott í góðri slökun.”

— Jón Egill Gíslason

“Alveg frábært hér og viljum ganga vel frá svo við höfum möguleika á að koma aftur.”

— Margrét Sigríður Sigurbjörnsdóttir

“Algjör snilld”

— Linda Másdóttir